Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 13. janúar 2018 15:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Frakkland: Fanndís spilaði er Marseille tapaði í enn eitt skiptið
Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn
Montpellier 3 - 2 Marseille
1-0 Linda Sembrant
2-0 Janice Cayman
3-0 Valerie Gauvin
3-1 Sandrine Bretigny
3-2 Sandrine Bretigny

Fanndís Friðriksdóttir spilaði með Marseille er liðið spilaði gegn Montpellier í frönsku úrvalsdeildinni í dag.

Marseille vann óvæntan sigur á Paris í síðustu umferð en í dag gerðist lítið óvænt hvað varðar úrslit.

Montpellier byrjaði vel og var 2-0 yfir í hálfleik. Eftir 20 mínútur í seinni hálfleiknum komst Montpellier í 3-0. Þá sýndi Marseille eitthvað og náði að klóra í bakkann með tveimur mörkum. Lengra komst Marseille hins vegar ekki og lokatölur 3-2.

Fanndís, sem fór til Marseille síðasta sumar, spilaði allan leikinn í dag samkvæmt vefsíðunni footofeminin. Marseille er á botni deildarinnar með sex stig eftir 13 leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner