lau 13. janúar 2018 15:00
Gunnar Logi Gylfason
Sanchez Flores ánægður - Tekur ekki við Stoke
Quique Sanchez Flores.
Quique Sanchez Flores.
Mynd: Getty Images
Quique Sanchez Flores segist vera ánægður hjá Espanyol og hefur ekki áhuga á að vera eftirmaður Mark Hughes hjá Stoke.

Sanchez Flores stýrði Watford tímabilið 2015-16 og lenti í 13. sæti. Hann hefur verið orðaður við Stoke að undanförnu en hefur ekki áhuga á að fara aftur til Englands.

„Ég hef allt sem ég þarf hér. Ég er þjálfarinn og mun vera það áfram," sagði Flores, sem er samningsbundinn Espanyol til ársins 2019. „Mér líður vel og ég er ánægður með stöðuna. Ég þarf ekki að útskýra neitt frekar," sagði Spánverjinn að lokum.

Espanyol siglir lygnan sjó í 14.sæti La Liga, átta stigum frá fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner