Gary Rowett knattspyrnustjóri Championship liðs Derby segir að markvörður liðsins Scott Carson eigi skilið sæti í enska landsliðshópnum.
Carson sem er 32 ára lék þá fjóra landsleiki sem hann hefur spilað fyrir fjórum árum síðan en Rowett telur hann verðskulda sæti í hópnum fyrir frábæra frammistöðu í Championship deildinni.
„Ég efast um að það sé nokkur markvörður sem er að standa sig jafn vel og hann þessa dagana," sagði Rowett um Carson.
Scott Carson mun að öllum líkindum standa á milli stanganna í dag þegar Derby heimsækir Birmingham, en Derby er í öðru sæti deildarinnar.
Athugasemdir