Framherjinn ungi Valur Reykjalín Þrastarson hefur gengið til liðs við Val.
Valur er ennþá á elsta ári í 2. flokki en hann var í leikmannahópi hjá meistaraflokki í 3-1 tapi gegn Fylki í Reykjavíkurmótinu í gær
Valur er ennþá á elsta ári í 2. flokki en hann var í leikmannahópi hjá meistaraflokki í 3-1 tapi gegn Fylki í Reykjavíkurmótinu í gær
Hinn 18 ára gamli Valur kemur til Vals frá KF en þar skoraði hann þrjú mörk í 18 leikjum í 3. deildinni síðastliðið sumar.
Valur skoraði einnig eitt mark í fjórtán leikjum í 2. deildinni með KF sumarið 2016.
Valur er mikill fótboltaáhugamaður en hann fermdist í takkaskónum eins og lesa má um í þessari frétt Fótbolta.net frá árinu 2013.
Athugasemdir