Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 13. febrúar 2016 09:00
Óðinn Svan Óðinsson
Þjálfari unglingaliðs Manchester United segir upp störfum
Paul Pogba spilaði undir stjórn McGuinness
Paul Pogba spilaði undir stjórn McGuinness
Mynd: Getty Images
Paul McGuinness þjálfari u-18 liðs Manchester United hefur sagt starfi sínu lausu.

McGuinness hefur starfað í yfir 25 ár hjá félaginu en hann tók við unglingaliðinu árið 2005.

Undir hans stjórn vann liðið FA Youth Cup árið 2011 en þá skartaði liðið mönnum eins og Ravel Morrison, Jesse Lingard og Paul Pogba.

„Það hefur verið heiður að starfa fyrir Manchester United í öll þessi ár og að sjá 86 leikmenn koma í gegnum unglingastarfið og spila fyrir aðalliðið hefur verið gefandi,” sagði Paul McGuinness.
Athugasemdir
banner
banner
banner