Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 13. febrúar 2018 06:00
Magnús Már Einarsson
Að duga eða drepast í næstu leikjum hjá WBA
Alan Pardew stjóri WBA.
Alan Pardew stjóri WBA.
Mynd: Getty Images
Útlitið er dökkt hjá WBA á botni ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-0 tapið gegn Chelsea í gær. Alan Pardew og lærisveinar hans eru sjö stigum frá öruggu sæti þegar ellefu umferðir eru eftir í deildinni.

WBA hefur einungis unnið einn af síðustu 25 leikjum og Championship deildar lykt er af liðinu.

Næstu sex leikir liðsins eru þó ekki gegn efstu liðunum en næstu andstæðingar eru Huddersfield, Watford, Leicester, Bournemouth, Burnley, Swansea.

Óhætt er að segja að nú sé að duga eða drepast fyrir WBA en næsti deildarleikur er gegn Huddersfield eftir ellefu daga.

Á undan því ætlar Pardew að skella sér í æfingaferð með liðið til Spánar til að reyna að stilla strengina fyrir lokasprettinn.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner
banner