Marcelo Brozovic, kantmaður Inter, á von á sekt frá félaginu eftir viðbrögð hans við skiptingu í leik gegn Bologna um helgina.
Stuðningsmenn Inter bauluðu á Brozovic þegar hann var tekinn af velli um helgina.
Stuðningsmenn Inter bauluðu á Brozovic þegar hann var tekinn af velli um helgina.
Brozovic brás við með því að klappa kaldhæðnislega til stuðningsmannanna.
Eigendur Inter og Luciano Spalletti þjálfari liðsins höfðu engan húmor fyrir þessu og hyggjast sekta Brozovic.
Brozovic er í króatíska landsliðinu en hann skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri gegn Íslandi í nóvember 2016.
Athugasemdir