Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 13. febrúar 2018 06:00
Ingólfur Stefánsson
„Hazard gæti farið ef Chelsea ná ekki Meistaradeildarsæti"
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher sérfræðingur á SkySports segir að Chelsea þurfi að lenda í einu af efstu fjórum sætunum til þess að halda Eden Hazard.

Hazard var maður leiksins í 3-0 sigri gegn botnliði West Brom í gærkvöldi. Belginn skoraði tvö mörk og létti pressunni af Antonio Conte.

Chelsea komust upp fyrir Tottenham með sigrinum en einungis einu stigi munar á liðunum.

„Hann er einn af þeim bestu í fótboltaheiminum. Allir stærstu klúbbarnir munu vilja fá hann ef Chelsea nær ekki Meistaradeildarsæti."

Athugasemdir
banner
banner
banner