Það eru tveir leikir á dagskrá í seinni umferð 16-liða úrslita Meistaradeildarinnar í kvöld.
Viðureignirnar eru enn galopnar þar sem Roma fær Shakhtar Donetsk í heimsókn frá Úkraínu á meðan Manchester United mætir Sevilla.
Viðureignirnar eru enn galopnar þar sem Roma fær Shakhtar Donetsk í heimsókn frá Úkraínu á meðan Manchester United mætir Sevilla.
Man Utd gerði markalaust jafntefli á Spáni en Roma tapaði 2-1 í Úkraínu.
Rauðu djöflarnir verða án Daley Blind, Phil Jones og Marcos Rojo vegna meiðsla. Þá eru Ander Herrera, Paul Pogba og Zlatan Ibrahimovic allir tæpir. Jesus Navas er meðal fimm tæpra leikmanna í liði Sevilla.
Leikir kvöldsins:
19:45 Man Utd - Sevilla (Stöð 2 Sport 2) (0-0)
19:45 Roma - Shakhtar Donetsk (Stöð 2 Sport) (1-2)
Athugasemdir