þri 13. mars 2018 22:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho segir frammistöðuna ekki hafa verið slæma
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Manchester United eru allt annað en sáttir með Jose Mourinho. Skildu flestir ekkert í leikplani Mourinho, en United liðið var mjög passívt.

Þrátt fyrir þetta var Mourinho bara nokkuð glaður með frammistöðuna.

„Frammistaðan var ekki slæm," sagði Mourinho við BBC eftir leikinn í kvöld.

„Ég gerði mitt besta og leikmennirnir gerðu sitt besta. Við reyndum og töpuðum, svona er fótboltinn."

Mourinho hrósaði svo kollega sínum Vincenzo Montella.

„Stundum er ég heppinn með breytingar, en það var vel gert hjá Vincenzo Montella að setja Wissam Ben Yedder inn á. Þegar þeir skoruðu fyrsta markið breyttist leikurinn."

Sjá einnig:
Mourinho: Á morgun er nýr dagur
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner