Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 13. mars 2018 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Mourinho segir Real að leita að öðrum markverði
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho býst við að halda David De Gea hjá félaginu þrátt fyrir mikinn áhuga frá Real Madrid.

De Gea er af mörgum talinn besti markvörður heims og er talið að Real sé reiðubúið til að greiða yfir 100 milljónir evra fyrir hann.

De Gea er 27 ára og rennur samningur hans við Rauðu djöflana út sumarið 2019. Skrifi hann ekki undir nýjan samning fyrir sumarið gæti United misst hann frítt á næsta ári.

„Ég held hann verði áfram hjá okkur. Ég veit ekki hvað Real Madrid ætlar sér, en ef ég væri þeir þá myndi ég einbeita mér að öðrum leikmönnum," sagði Mourinho við La Sexta fyrir leikinn gegn Sevilla í kvöld.

United og Sevilla gerðu markalaust jafntefli í fyrri leiknum á Spáni þökk sé De Gea, sem varði meðal annars skalla frá Luis Muriel af tveggja metra færi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner