Tveir leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í dag en annar leikurinn er einn stærsti leikur ársins í deildinni.
Liverpool fær Manchester City í heimsókn á Anfield klukkan 12:37 en þarna eru tvö af sterkustu liðum deildarinnar að mætast.
Ljóst er að sigurvegarinn í þessum leik gæti skorið úr um hvort liðið hreppir titilinn í ár en bæði eru talinn afar líkleg til þess að vinna hann. Liverpool er á toppnum sem stendur en Manchester City á tvo leiki til góða.
Liverpool hefur gengið afar vel á þessari leiktíð og sömuleiðis hefur gengið vel hjá Man City og ljóst að stórleikur ársins fer fram í hádeginu.
Swansea City mætir Chelsea svo seinna um daginn en Chelsea er einnig í hörku baráttu um titilinn. Liðið hefur ekki gefið upp vonina á honum en álagið verður afar mikið á þeim bláklæddu sem undirbúa sig undir undanúrslit Meistaradeildar Evrópu.
Leikir dagsins:
12:37 Liverpool - Manchester City
15:07 Swansea City - Chelsea
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir