Markvörðurinn Kristinn Geir Guðmundsson hefur gengið til liðs við Hauka.
Kristinn lék sinn fyrsta leik í 1-1 jafntefli Hauka gegn ÍBV í Lengjubikarnum í gær.
Kristinn lék sinn fyrsta leik í 1-1 jafntefli Hauka gegn ÍBV í Lengjubikarnum í gær.
Kristinn verður 35 ára á árinu en hann hefur verið í fríi frá fótbolta síðan sumarið 2007 þegar hann spilaði með Völsungi í 2. deildinni.
Kristinn lék áður með Val, ÍBV ÍR og Dalvík en hann á leiki að baki í efstu deild með fyrstnefnda liðinu.
Hjá Haukum mun Kristinn berjast við Sigmar Inga Sigurðarson um markvarðarstöðuna en hann varði mark Hafnarfjarðarliðsins í fyrra.
Athugasemdir