Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 13. apríl 2014 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo ætlar að leigja Sepp Blatter íbúðina sína í sumar
Það er nóg til hjá Blatter
Það er nóg til hjá Blatter
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brasilískir fjölmiðlar greindu frá því í gær að Sepp Blatter, forseti knattspyrnusambands FIFA, ætli sér að leigja íbúð Ronaldo í sumar á meðan HM fer fram.

Blatter, sem er 78 ára gamall, hefur ekki þótt neitt sérstaklega vinsæll sem forseti FIFA en hann hefur oft verið talinn umdeildur innan hreyfingarinnar.

Samkvæmt fjölmiðlum í Brasilíu hefur hann nú komist að samkomulagi við fyrrum framherja brasilíska landsliðsins, Ronaldo, um að leigja íbúð hans á meðan HM stendur yfir þar í landi í sumar.

Íbúðin er við ströndina í Rio De Janeiro en þar mun forsetinn búa í sex vikur á meðan mótið er í gangi. Talið er að Blatter borgi Ronaldo 404 þúsund evrur í leigu fyrir þessar sex vikur en það gerir um 9,600 evrur á dag.
Athugasemdir
banner
banner