Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 13. apríl 2014 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Spánn - Leikir dagsins: Tekst Atletico að auka forskotið?
Mynd: Getty Images
Fjórir leikir fara fram í spænska boltanum í dag en Atletico Madrid getur aukið forskot sitt á toppnum.

Þetta byrjar snemma í dag en Real Betis og Sevilla mætast í nágrannaslag klukkan 10:00 og verður þar boðið upp á hörkuleik.

Valencia og Elche mætast svo klukkan 15:00 en Valencia er í góðum gír eftir magnaða endurkomu gegn Basel í Evrópudeildinni í vikunni.

Getafe tekur þá á móti Atletico Madrid en Madrídarliðið er að gera harða atlögu að spænska titlinum í ár sem og Meistaradeildartitlinum þar sem liðið er komið í undanúrslit.

Espanyol og Rayo Vallecano ljúka svo deginum með góðum kvöldleik.

Leikir dagsins:
10:00 Real Betis - Sevilla FC
15:00 Valencia - Elche
17:00 Getafe - Atletico Madrid
19:00 Espanyol - Rayo Vallecano

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner