KR-ingar hafa ákveðið að draga sig úr keppni í Lengjubikarnum en liðið mun því ekki taka þátt í 8-liða úrslitunum á fimmtudag.
Ástæðan er sú að KR-ingar héldu í morgun til Spánar í æfingaferð.
Áður höfðu bæði Stjarnan og Leiknir dregið sig úr Lengjubikarnum en þau eru einnig á leið í æfingaferð til Spánar í vikunni.
Það að KR dragi sig úr keppni þýðir að KA mun fylgja Víkingi og Fjölni áfram úr riðli tvö. KA endaði í fimmta sæti riðilsins en kemst upp í 3. sætið eftir að KR og Leiknir drógu sig úr keppni.

KA mætir Fylki í 8-liða úrslitunum sem fara fram á fimmtudag. Fjölnismenn áttu upphaflega að mæta Fylki en þeir munu nú leika við ÍA.
8-liða úrslit á fimmtudag:
18:00 Víkingur R. - FH (Víkingsvöllur)
18:00 ÍA - Fjölnir (Akraneshöllin)
19:00 Breiðablik - Valur (Fífan)
19:00 Fylkir - KA (Fylkisvöllur)
Undanúrslit á sunnudag:
16:00 Fylkir/KA - ÍA/Fjölnir
16:00 Víkingur R./FH - Breiðablik/Valur
Úrslitaleikurinn verður í Kórnum 23. apríl
Athugasemdir