Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. apríl 2018 19:30
Ingólfur Stefánsson
Neymar ætlar ekki að missa af HM
Mynd: Getty Images
Brasilíski sóknarmaðurinn Neymar segir að hann verði búinn að jafna sig á meiðslum sínum fyrir HM í Rússlandi næsta sumar.

Neymar segir að hann verði mættur aftur á fótboltavöllinn eftir mánuð.

Þessi 26 ára sóknarmaður PSG fór í aðgerð í síðasta mánuði eftir að hafa meiðst á fæti gegn Marseille 25. febrúar.

Neymar var gestur í brasilískum spjallþætti á dögunum og þar sagði hann að endurhæfingin gengi vel.

„Ég verð byrjaður að spila aftur eftir rúman mánuð. Allt gengur vel."
Athugasemdir
banner
banner
banner