Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 13. maí 2013 07:00
Hafliði Breiðfjörð
Actavis ætlar að gefa 25 miða á FH-ÍBV
David James kemur með ÍBV í Kaplakrikann í dag.
David James kemur með ÍBV í Kaplakrikann í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Actavis, helsti styrktaraðili FH í fótbolta, ætlar að gefa 25 heppnum einstaklingum miða á FH - ÍBV í Pepsi deild karla sem fram fer á Kaplakrikavelli í næstkomandi fimmtudagskvöld klukkan 20:00.

Þarna spilar David James fyrrverandi landsliðsmarkvörður Englands sinn fyrsta leik á fasta landinu eftir að hafa gengið í raðir ÍBV í vetur en fyrstu tveir leikir mótsins hjá liðinu fóru fram í Vestmannaeyjum.

Þeir sem vilja vera með í pottinum þurfa einfaldlega að fylla út þrjá reiti inn á síðu Actavis og þá eiga þeir möguleika á miða.

Við hvetjum alla til að taka þátt og að sjálfsögðu mæta á völlinn enda um hörkuleik að ræða.

Smelltu hér til að taka þátt.
Slapp
banner
banner
banner