Coerver Coaching heldur knattspyrnunámskeið í Fagralundi Kópavogi daganna 27.-29. júlí nk fyrir 4.-6. flokk drengja og stúlkna.
Þetta er þriðja námskeið Coerver Coaching á sínu fyrsta starfsári hér á landi. Fyrstu tvö námskeiðin voru gríðarlega vel sótt. Hægt er að skrá sig á námskeiðið hér http://coerver.is/shop/Knattspyrnuskoli.
Coerver Coaching er hugmynda- og æfingaáætlun í knattspyrnu sem þjálfar upp færni og hentar öllum aldurshópum en sérstaklega aldrinum 6-16 ára á öllum getustigum.
Hugmyndafræðin einblínir á að auka færni einstaklingsins og leikæfingar í smáum hópum.
Allar æfingar eru í höndum reyndra þjálfara frá Coerver Coaching.
Framkvæmdarstjóri og yfirþjálfari Coerver Coaching á Íslandi er Heiðar Torleifsson einn reyndasti barna og unglingaþjálfari landsins.

