Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 13. maí 2013 09:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Ferdinand: Vonandi mun Ferguson leggja inn gott orð fyrir mig
Rio Ferdinand fullkomnaði kveðjustund Sir Alex Ferguson á Old Trafford í gær þegar enski varnarmaðurinn skoraði 2-1 sigurmarkið gegn Swansea í síðasta heimaleik tímabilsins.

Var þetta í síðasta sinn sem Manchester United lék á Old Trafford undir stjórn Ferguson sem mun láta af störfum sem knattspyrnustjóri félagsins eftir tímabilið.

,,Hann átti skilið að vinna í sínum síðasta heimaleik," sagði Ferdinand eftir leikinn.

,,Það var sárt að heyra að hann myndi hætta en þetta er stórt félag og við verðum að halda áfram. Hann vill það."

Þá vonast Ferdinand til að samningur hans hjá Manchester United verði framlengdur.

,,Ég mun ræða við stjórnina og tala við knattspyrnustjórann. Vonandi mun hann leggja inn gott orð fyrir mig," sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner