Ívar Örn Reynisson formaður knattspyrnudeildar Skallagríms að skrifa undir ásamt Bryndísi Hlöðversdóttur Rektors Háskólans á Bifröst, auk Sveinbjörns.
Á Uppstigningardag 9.maí á opnum degi Háskólans á Bifröst var undirritað samkomulag þess efnis að einn lykilleikmaður knattspyrnudeildar Skallagríms fái niðurfelld skólagjöld frá og með haustönn 2013.
Samkomulag er með knattspyrnudeild Skallagríms og Háskólans á Bifröst að Sveinbjörn Guðlaugsson fái að njóta þessa námsstyrks en hann er útskrifaður Viðskiptalögfræðingur frá Bifröst og stundar nú meistaranám í lögfræði (ML) við Háskólann á Bifröst.
Sveinbjörn kemur frá Blönduósi og á fjölda leikja að baki fyrir Hvöt, Tindastól og Drangey. Hann verður án efa mikill liðsstyrkur fyrir Skallagrímsmenn í 4. deildarbaráttunni í sumar.


