„Þessi sigur gerði það að verkum að við erum enn með í baráttunni og eigum möguleika á að komast í Mestaradeildina," sagði Andre Villas-Boas eftir sigur Tottenham gegn Stoke í gær.
„Við vildum vera í möguleika fyrir lokaumferð þar sem við eigum heimaleik. Vonandi munu einhverjir misstíga sig. Arsenal er sterkt og reynslumikið lið en þetta verður tæpt."
Villas-Boas hrósaði Clint Dempsey sérstaklega en Bandaríkjamaðurinn jafnaði leikinn í gær og átti stóran þátt í sigurmarkinu.
„Hann hefur verið gríðarlega mikilvægur á þessu tímabili, lagt upp mörk og skorað og oft á tíðum ekki fengið það hrós sem hann á skilið. Hann leggur mikið á sig og er alvöru íþróttamaður sem átti frábæran leik. Ég er mjög ánægður með liðið," sagði Villas-Boas.



