Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, var að vonum sáttur eftir 3-2 sigur sinna manna á Fjölni í Pepsi deildinni í dag. Sigurmark FH kom á 90.mínútu leiksins.
„Ég er mjög ánægður að klára þennan leik. Við vissum að þetta yrði tyrfinn leikur á þurru gervigrasi. Umgjörðin hjá Fjölni er frábær en ég hefði viljað að gervigrasið hefði verið bleytt." sagði Óli Kristjáns eftir leik.

Lestu um leikinn: Fjölnir 2 - 3 FH
Rennico Clarke hefur ekki verið með FH í byrjun móts eftir að hann samdi við liðið í byrjun apríl og var engin breyting þar á í dag. Ólafur býst við honum sem fyrst.
„Hann er einhversstaðar í pappírsveseni í Karabíska hafinu. Hann vill ólmur koma hvort sem að þið trúið því eða ekki en það verða öll skjöl að koma á borðið áður en að hann getur flogið." sagði Óli aðspurður um málið.
Egill Darri Makan Þorvaldsson var í byrjunarliði FH í dag en hann er fæddur árið 2001. Ólafur var ánægður með hans frammistöðu í dag.
„Hann kom frábærlega inní liðið. Hann lendir á móti mjög erfiðum andstæðingi sem að erfitt að spila á móti. Hann er rólegur á boltann og átti feykilega góðan leik." sagði Óli að lokum.
Athugasemdir