Tveir leikir voru í sjöttu umferð 1. deildarinnar í kvöld. Leiknir og Víkingur gerðu jafntefli í hreint mögnuðum fótboltaleik í Breiðholtinu þar sem dramatíkin var allsráðandi.
Hjalti Már Hauksson, leikmaður Víkings, fékk umdeilt rautt spjald á 63. mínútu í stöðunni 1-1 en skömmu síðar skoraði Leiknir úr víti. Viktor Jónsson jafnaði fyrir Víkinga í blálokin og í uppbótartíma höfnuðu tvær skottilraunir Leiknis í tréverkinu.

Topplið Grindavíkur vann 3-0 útisigur gegn Þrótti en Þróttarar eru í fallsæti með aðeins þrjú stig.
Nánari umfjöllun og viðtöl koma inn á síðuna síðar í kvöld.
Leiknir 2 - 2 Víkingur
1-0 Brynjar Hlöðversson ('35)
1-1 Aron Elís Þrándarson ('51)
2-1 Hilmar Árni Halldórsson ('65, víti)
2-2 Viktor Jónsson ('91)
Rautt spjald: Hjalti Már Hauksson, Víkingur R. (63)
Þróttur 0 - 3 Grindavík
0-1 Jósef Kristinn Jósefsson ('23)
0-2 Juraj Grizelj ('24)
0-3 Guðfinnur Þórir Ómarsson ('88)