Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 13. júní 2013 21:05
Sebastían Sævarsson Meyer
2. deild: Afturelding og Njarðvík unnu
Njarðvíkingar fagna í kvöld.
Njarðvíkingar fagna í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Tveimur leikjum var að ljúka í 2. deild karla nú rétt í þessu þar sem Afturelding lagði Reyni S. og Njarðvík vann Gróttu.

Afturelding vann öruggan 3-0 sigur á Reyni og er komið upp í annað sæti deildarinnar. Reynir S. er hins vegar í næst neðsta sæti með þrjú stig eftir sex umferðir.

Njarðvík sigraði Gróttu 2-0 og fór liðið upp í sjötta sætið á meðan Grótta situr í því áttunda. Hér að neðan eru myndir úr leik Njarðvíkur og Gróttu.

Afturelding 3 - 0 Reynir S.
1-0 Magnús Már Einarsson ('9)
2-0 Alexander Aron Davorsson ('15)
3-0 Arnór Snær Guðmundsson ('42)

Njarðvík 2 - 0 Grótta
1-0 Daníel Gylfason ('16)
2-0 Markaskorara vantar ('90)
Slapp
banner
banner
banner