Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 13. júní 2013 15:29
Þórður Már Sigfússon
Heimild: Goal.com/it 
Alfreð sagður á innkaupalista Lazio
Ítalska úrvalsdeildarliðið Lazio hefur áhuga á að hefja viðræður við hollenska liðið Heerenveen um kaup á landsliðsframherjanum Alfreði Finnbogasyni. Þetta fullyrðir ítalska útgáfa Goal.com á vefsíðu sinni í dag.

Samkvæmt fréttinni mun Alfreð vera einn fimm leikmanna sem forráðamenn Lazio geri sér vonir um að krækja í á komandi vikum en Igli Tare, yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu, er sagður mjög hrifinn af markanefi leikmannsins.

Hins vegar gæti leynst ásteytingarsteinn í komandi viðræðum félaganna um kaupverð leikmannsins því Lazio er sagt tilbúið að reiða fram fjórar milljónir evra en forráðamenn Heerenveen meti verðmæti Alfreðs á rúmar sjö milljónir evra.

Alfreð skoraði 24 mörk í 31 deildarleik með Heerenveen á síðasta keppnistímabili og eru mörg lið á meginlandi Evrópu sem og í Bretlandi með hann undir smásjánni um þessar mundir.

Líklegt má telja að hann yfirgefi herbúðir Heerenveen í sumar.
Slapp
banner
banner