Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 13. júní 2013 12:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Aspas til Liverpool á næstu dögum
Iago Aspas, framherji Celta Vigo, mun ganga í raðir Liverpool á næstu dögum en þetta segir umboðsmaður hans.

Aspas fór í læknisskoðun hjá Liverpool á þriðjudag en hélt síðan aftur til Spánar.

Þrátt fyrir smá töf þá munu félagaskiptin ganga í gegn á næstunni.

,,Það ættu ekki að vera nein vandamál. Það á bara eftir að ganga frá pappírsvinnunni," sagði Jonathan Aspas bróðir og umboðsmaður leikmannsins.

Aspas skoraði tólf mörk í La Liga á síðasta tímabili en talið er að Liverpool borgi sjö milljónir punda fyrir leikmanninn.
Slapp
banner