Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 13. júní 2013 18:45
Valur Páll Eiríksson
Álfukeppnin 2013 - Upphitun: Japan
A-riðill
Nú er Álfukeppnin á næsta leiti en hún fer fram í Brasilíu þar sem að þeir halda einnig Heimsmeistaramótið á næsta ári. Á mótinu keppa meistarar hverrar álfu, auk mótshaldara og heimsmeistara. Brasilíumenn eru ríkjandi meistarar en þeir hafa unnið síðustu tvær keppnir árin 2005 og 2009. Keppnin fer fram milli 15. og 30. júní og eru allir leikir keppnarinnar sýndir á RÚV Íþróttir. Japanir eru í A-riðli ásamt Brasilíu, Ítalíu og Mexíkó.

Hvar eru þeir á heimslistanum? – 32. sæti

Japan
Að venju er landslið Japana nokkuð óskrifað blað fyrir fótboltaáhugamenn í vestrænum heimi. Þó hafa sífellt fleiri leikmenn þaðan verið að sanna sig í Evrópu og boltinn virðist vera á uppleið þar í landi. Liðið kom nokkuð á óvart á HM 2010 þar sem þeir duttu út í 16-liða úrslitum gegn Paragvæ í vítaspyrnukeppni eftir að hafa komist sannfærandi áfram úr riðli með Hollandi, Danmörku og Kamerún. Baráttugleði, agi og léttir leikmenn fram á við einkenndu leik liðsins og hefur liðið eingöngu orðið betra síðan þá, a.m.k. á blaði.

Þjálfarinn: Alberto Zaccheroni
Forveri Zaccheronis, Takeshi Okada var mikið lofaður fyrir starf sitt sem þjálfari landsliðsins. Hann sá fyrir að Japan myndi ganga eins vel og þeim gekk á HM 2010 og átti upptökin að vissum kynslóðarskiptum hjá landsliðinu. Eftir HM vildi Okada taka sér frí frá fótbolta og var reynsluboltinn Alberto Zaccheroni ráðinn í hans stað. Zaccheroni hefur verið knattspyrnustjóri frá árinu 1983 og hefur m.a. þjálfað AC Milan, Lazio, Inter og Juventus. Hann hefur þó aldrei náð virkilegum árangri á sínum langa ferli að undanskildum Serie A titli með AC Milan árið 1998. Hann hefur aldrei stýrt liði lengur en í 3 ár í senn og virðist hann nú loksins vera að ná því með Japanska landsliðið.

Hvernig komust þeir á mótið?
Japanir unnu Ástrali í úrslitaleik Asíukeppninnar þann 23. janúar 2011 og tryggðu sér þar með þáttökurétt á mótinu. Eins og við var að búast komust Japanir nokkuð auðveldlega í undanúrslitin þar sem þeir unnu S-Kóreu í vítaspyrnukeppni eftir 2-2 jafntefli. Ástralir voru líklegri aðilinn fyrir úrslitaleikinn þar sem þeir höfðu unnið Úsbekistan nokkuð auðveldlega 6-0 í hinum úrslitaleiknum meðan að Japanir höfðu spilað í 120 mínútur gegn sterkum andstæðingi. Því kom á óvart að Japan skyldi klára leikinn í framlengingu einungis fjórum dögum eftir leikinn gegn Kóreubúum.

Lykilmaðurinn: Keisuke Honda
Erfitt var að velja milli Shinji Kagawa og Keisuke Honda í þennan lið en að lokum varð Honda þó fyrir valinu. Hann var valinn besti leikmaður mótsins er þeir unnu Asíukeppnina 2011 og hefur mestallur sóknarleikur liðsins farið í gegnum hann allt frá því á Heimsmeistaramótinu 2010. Vegna meiðsla hefur hann ekki náð nema tvemur landsleikjum á árinu en hefur hins vegar skorað tvö mörk í þeim. Á nýliðnu tímabili var hann lykilmaður í meistaraliði CSKA Moskvu í Rússlandi þar sem hann skoraði sjö mörk í 23 leikjum.

X-Factor: Varnarleikur & markvarsla
Japanir spiluðu skipulagðan leik undir stjórn Okada en pressuðu yfirleitt hátt og reyndu að halda boltanum. Ljóst er að Zaccheroni dregur ekki úr skipulaginu og búast má við að þeir liggi töluvert aftur enda eingöngu að fara að mæta sterkum liðum. Hins vegar er nokkuð ljóst að á blaði eru framliggjandi leikmenn liðsins sterkari en þeir sem spila aftar. Nagatomo og Uchida eru öflugir bakverðir en eru þekktari fyrir getu sína fram á við heldur en aftur á við. Ég tel að það myndi henta Japan best að pressa hátt enda með mikla vinnslu í nánast hverri einustu stöðu á vellinum. Einnig almennt fljóta leikmenn sem missa menn ekki auðveldlega inn fyrir sig. Hins vegar held ég að Yasuyuki Konno og Maya Yoshida sem líklega verða í miðverði muni eiga erfitt með að höndla stóran og sterkan framherja. Líklega mun mikið mæða á Eiji Kawashima, markverði Standard Liege í Belgíu, en hann sló Sinan Bolat, markvörð Standard til margra ára út úr liðinu og hélt stöðunni mestallt tímabilið. Hann mun þurfa að eiga gott mót til þess að Japanir eigi að ná árangri.

Spá
Gríðarlega erfitt er að spá fyrir um gengi Japana. Undirritaður telur að þeir muni stríða liðunum í riðlinum en komist líklega ekki áfram. Ef að hins vegar vel tekst til í fyrsta leik og leikmenn liðsins verða vel upplagðir fyrir mótið og ná að mynda góða stemmningu, þá gæti allt gerst. Hins vegar hefur Japönum rosalega misvel síðustu misseri. Þeir unnu Frakka í æfingaleik 1-0, 12. október 2012 en fjórum dögum síðar töpuðu þeir 4-0 gegn Brasilíu sem þeir mæta einmitt í fyrsta leik. 26. mars síðastliðinn töpuðu þeir 2-1 gegn Jórdönum í Undankeppni HM og 30. maí unnu Búlgarar þá sannfærandi 2-0 í Japan. Spennandi verður að sjá hvernig þeim gengur og sérstaklega hvernig Zaccheroni gengur gegn Ítalíu.

Hópurinn
1. Eiji Kawashima - Standard Liege
2. Maisahiko Inoha - Júbilo Iwata
3. Gotoku Sakai - VfB Stuttgart
4. Keisuke Honda - CSKA Moskva
5. Yuto Nagatomo - Inter Milan
6. Atsuto Uchida - Schalke 04
7. Yasuhito Endo - Gamba Osaka
8. Hiroshi Kiyotake - 1. FC Nurnberg
9. Shinji Okazaki - VfB Stuttgart
10. Shinji Kagawa - Manchester United
11. Mike Havenaar - Vitesse
12. Shusaku Nishikawa - Sanfrecce Hiroshima
13. Hajime Hosogai - Hertha BSC
14. Kengo Nakamura - Kawasaki Frontale
15. Yasuyuki Konno - Gamba Osaka
16. Yuzo Kurihara - Yokohama F. Marinos
17. Makoto Hasebe (F) - VfL Wolfsburg
18. Ryoichi Maeda - Júbilo Iwata
19. Takashi Inui - Eintracht Frankfurt
20. Hideto Takahashi - FC Tokyo
21. Hiroki Sakai - Hannover 96
22. Maya Yoshida - Southampton
23. Shuichi Gonda - FC Tokyo

Líklegt byrjunarlið


Leikir liðs
• 15. júní, kl. 19:00 – Brasilía - Beint á RÚV Íþróttir
• 19. júní, kl. 22:00 – Ítalía - Beint á RÚV Íþróttir
• 22. júní, kl. 19:00 – Mexíkó - Beint á RÚV Íþróttir
Slapp
banner
banner
banner