Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 13. júní 2013 18:30
Valur Páll Eiríksson
Álfukeppnin 2013 - Upphitun: Mexíkó
A-riðill
Nú er Álfukeppnin á næsta leiti en hún fer fram í Brasilíu þar sem að þeir halda einnig Heimsmeistaramótið á næsta ári. Á mótinu keppa meistarar hverrar álfu, auk mótshaldara og heimsmeistara. Brasilíumenn eru ríkjandi meistarar en þeir hafa unnið síðustu tvær keppnir árin 2005 og 2009. Keppnin fer fram milli 15. og 30. júní og eru allir leikir keppnarinnar sýndir á RÚV Íþróttir. Mexíkóar eru í A-riðli ásamt Brasilíu, Ítalíu og Japan.

Hvar eru þeir á heimslistanum? – 17. sæti

Mexíkó
Spennandi verður að sjá „gullkynslóð“ Mexíkóa í sumar en margir leikmenn úr sigurliði þeirra frá Ólympíuleikunum síðastliðið sumar fá tækifæri í hópnum. Guillermo Ochoa markvörður þeirra átti frábæra leiktíð í Frakklandi og hefur m.a. verið orðaður við Liverpool. Þó hefur José Jesús Corona verið í markinu undanfarið og spurning hvor þeirra spilar. Þeir eru sterkir framávið og gaman verður að sjá Pablo Barrera, Giovani dos Santos, Andrés Guardrado og Javier Hernández takast á við varnir andstæðingana.

Þjálfarinn: José Manuel de la Torre
„Chepo“ eins og hann er kallaður var hinn fínasti framliggjandi miðjumaður á sínum tíma og á um 400 leiki að baki í efstu deild í Mexíkó og 20 landsleiki. Hann leggur mikið upp úr aga og sést það m.a. á því að Carlos Vela er ekki í hópnum. Það er vegna þess að Vela neitaði kalli í landsliðið fyrr í vetur og Chepo hefur engan áhuga á að taka svoleiðis menn með sér í Álfukeppnina. Í gegnum árin hefur oft mikið húllumhæ verið í kringum Mexíkóska landsliðið en hann líður ekkert slíkt og hikar ekki við að henda mönnum í landsliðsbann ef þeir halda sig ekki á mottunni. Áður en að hann tók við landsliðinu hafði hann unnið einn meistaratitil með Chivas árið 2006 og svo tvo í viðbót með Toluca árin 2008 og 2010.


Mexíkóar unnu Gullkeppnina um Norður-Ameríkutitilinn eftir magnaðan 4-2 sigur á Bandaríkjunum í úrslitaleik sem fram fór í Rósaskálinni í Kaliforníuríki fyrir framan rúmlega 90 þúsund manns. Þar komust heimamenn 2-0 eftir 23 mínútur áður en Mexíkóar jöfnuðu 2-2 fyrir hálfleik. Þeir bættu svo tveimur mörkum við í síðari hálfleik og tryggðu þar með titilinn og 100% sigurhlutfall sitt í keppninni. Sex sigrar í sex leikjum og 22-4 í markatölu. Stórkostleg frammistaða hjá sterku liði Mexíkó.

Lykilmaðurinn: Javier Hernández
Það er ekki að spurja að því hver lykilmaður þessa Mexíkóska liðs er. Þrátt fyrir að mönnum hafi hann ekki endilega staðið sig eins vel og hann gæti á þessu tímabili náði hann að skora tíu mörk í deildinni rétt eins og árið áður. Það er líka alveg sama hvernig hann spilar með United, hann skorar alltaf með landsliðinu, 32 mörk í 47 landsleikjum segja sína sögu. Hann var markahæsti maður mótsins í N-Ameríkukeppninni með sjö mörk í sex leikjum. Að auki er hann kominn með fjögur mörk í fjórum leikjum með landsliðinu á þessu ári. Þetta er maður sem getur skorað gegn hvaða liði sem er, spurningin er hversu góða þjónustu hann fær, því að þegar hann fær færi endar boltinn yfirleitt í netinu.

X-Factor: Varnarleikur
Til þess að Mexíkó nái árangri á þessu móti, þarf vörnin þeirra að smella. Gaman verður að fylgjast með hinum bráðefnilega Diego Reyes, leikmanni Porto en hann var stórkostlegur í meistaraliði Mexíkóa á Ólympíuleikunum í London 2012. Þeir eru með góða leikmenn fram á við í Guardrado, dos Santos, Hernández o.fl. en spurningamerki verður að setja við öftustu fjóra og miðjuna þar fyrir framan. Ef að „Chepo“ nær að koma góðu skipulagi á sína menn og erfitt verður að brjóta þá aftur, þá er þetta lið til alls víst.

Spá
Að sjálfsögðu er erfitt að segja til um þá eins og öll hin liðin á mótinu. Þeir eru í þessum sterka riðli þar sem allir geta unnið alla og mun þetta velta mikið á dagsformi og heppni. Þetta ár hefur ekki verið nægilega gott hjá þeim þrátt fyrir að vera taplausir í þeim sjö leikjum sem þeir hafa spilað hafa þeir einungis unnið einn. Viss kynslóðaskipti eru að eiga sér stað í liðinu og margir leikmenn sem að voru í meistaraliði Mexíkóa frá Ólympíuleikunum 2012 eru í hópnum. Þar að auki eru þeir með gríðarlega reynslu þrátt fyrir ungan aldur í Andrés Guardrado (26 ára, 92 landsleikir), Giovani dos Santos (24 ára, 63 landsleikir) og Héctor Moreno (25 ára, 41 landsleikur). Gaman verður að sjá hvort að yngri leikmenn hópsins fái tækifæri og hvernig þeir þá standa sig.

Hópurinn
1. Guillermo Ochoa - Ajaccio
2. Francisco Javier Rodríguez - América
3. Carlos Salcido - UANL
4. Diego Reyes - Porto
5. Jesús Molina - América
6. Gerardo Torrado - Cruz Azul
7. Pablo Barrera - Cruz Azul
8. Ángel Reyna - Pachuca
9. Aldo de Nigris - Monterrey
10. Giovani dos Santos - Mallorca
11. Javier Aquino - Villarreal
12. José de Jesús Corona - Cruz Azul
13. Severo Meza - Monterrey
14. Javier Hernández - Manchester United
15. Héctor Moreno - Espanyol
16. Héctor Herrera - Porto
17. Jesús Zavala - Monterrey
18. Andrés Guardrado - Valencia
19. Raúl Jiménez - Hamburger SV
20. Jorge Torres Nilo - UANL
21. Hiram Mier - Monterrey
22. Gerardo Flores - Cruz Azul
23. Alfredo Talavera - Toluca

Líklegt byrjunarlið


Leikir liðs
• 16. júní, kl. 19:00 – Ítalía - Beint á RÚV Íþróttir
• 19. júní, kl. 19:00 – Brasilía - Beint á RÚV Íþróttir
• 22. júní, kl. 19:00 – Japan - Beint á RÚV Íþróttir
Slapp
banner