Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 13. júní 2013 13:45
Magnús Már Einarsson
Gummi Steinars og Siggi Helga í sjónvarpsþættinum
Sóli Hólm og Sigurbjörn Hreiðars stýra þættinum.
Sóli Hólm og Sigurbjörn Hreiðars stýra þættinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sjónvarpsþátturinn Fótbolti.net er flautaður á klukkan 12:30 á morgun en hann er á dagskrá á SportTv klukkan 12:30 á föstudögum og sýndur bæði á netinu og í sjónvarpi.

Þáttastjórnendur eru Sóli Hólm og Sigurbjörn Hreiðarsson.

Smelltu hér til að fara í beina vefútsendingu

Dagskrá í þætti sex:
- Guðmundur Steinarsson kíkir í heimsókn og ræðir um Pepsi-deildina
- Varnarleikur liðanna í Pepsi-deildinni skoðaður ítarlega
- Sigurður Helgason kíkir í heimsókn og ræðir um fyrstu deildina
- Myndbrot úr þremur leikjum í fyrstu deild karla

Þátturinn er í beinni vefútsendingu á SportTv.is og einnig sýndur í sjónvarpi á rás 17 í sjónvarpi Símans og 800 hjá Vodafone. Upptaka af honum verður svo sett inn á heimasíðu SportTv

Áhorfendur geta tekið þátt og komið með uppástungur að umræðuefni með því að hafa samband á @SoliHolm á Twitter.
Slapp
banner