Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 13. júní 2013 17:30
Brynjar Ingi Erluson
Best í 6. umferð: Bryndís Jóhannesdóttir (ÍBV)
Kvenaboltinn
Bryndís í leik með FH síðasta sumar
Bryndís í leik með FH síðasta sumar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
,,Þetta kemur alveg svolítið á óvart þar sem við fengum liðið okkar saman seint í mótið, en við erum með hörkulið þegar allt gengur eins og það á að ganga þannig í rauninni er þetta bæði og," sagði Bryndís Jóhannesdóttir, leikmaður ÍBV í Pepsi-deild kvenna, en hún er leikmaður sjöttu umferðar eftir frábæran leik í 5-0 sigri á Aftureldingu.

Bryndís gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu gegn Aftureldingu, en hún hefur verið mikill drifkraftur í liði ÍBV sem situr í þriðja sæti deildarinnar eftir sex umferðir.

,,Maður vonaðist eftir því að vera í topp þremur en var líka smeyk við útaf því við vorum lengi að fá leikmenn í byrjun móts. Það var svolítið erfitt að móta liðið fyrir mót og það var mikil óvissa."

,,Við þekktum Vesnu og Shaneku frá fyrri árum, en þekktum fyrirliða Barcelona ekkert og Rosie Sutton kom frá Ástralíu og við vissum ekkert um hana og við vorum að renna svolítið blint út í sjóinn, en miðað við þetta er ég bara mjög sátt við stöðuna."


Bryndís er kominn með sex mörk í fyrstu sex umferðunum og fer vel af stað, en hún bjóst

,,Ég er búin að vera að segja við fólkið hérna í Vestmannaeyjum að ég ætlaði bara að byrja á að skora eitt mark, svo núna þegar það er komið þá segjum við að ég ætli mér að skora eitt í viðbót. Ég veit ekki með að setja stefnuna á markakóngstitilinn samt."

,,Við höfðum verið að spila vel. Völlurinn hefur verið blautur og hefur verið mikið rigning hér og það bitnar svolítið á spilamennskunni, en miðað við hvernig við erum að standa okkur í deildinni fyrir utan Stjörnuleikinn þá hefur þetta verið fínt. Komum til baka í Valsleiknum og það var erfitt að klára Selfossleikinn annars hefur þetta verið flott," sagði hún ennfremur.

Bryndís á enn eftir að spila sinn fyrsta A-landsleik, en hún segist hætt að spá í sæti í landsliðinu. Þrátt fyrir frábæra spilamennsku í deildinni að undanförnu þá var hún ekki valin í hópinn gegn Dönum.

,,Ég spáði í þessu þegar ég var yngri, en þegar maður er komin yfir þrítugt og ekki enn komin með A-landsleik þá ertu ekkert að fara að banka á dyrnar. Ef að þú horfir á hópinn þá er þetta samanbland, reynsluboltar og ungar og efnilegar en svo var hann að velja tvær nýjar og þær eru ungar og efnilegar."

,,Þú ert ekkert að fara að velja 30 ára gamla kempu í landsliðið, en ég veit það ekki, það þarft að vera á ákveðnum quality standard til þess að vera þar. Ég hef verið heppin með þessi sex mörk og geri engar kröfur á þetta."


Næsti leikur er gegn Breiðablik, það verður sterkur leikur, en þessi lið hafa verið í toppbaráttunni í fyrstu umferðunum.

,,Það verður gríðarlega erfiður leikur og við erum búnar að spá mikið í leik Blika, því þær eru erfiðar. Fótboltinn er þannig að þú verður að nýta þér veikleika liðsins, þær töpðuðu á móti FH og mæta dýrvitlausar," sagði hún að lokum.
Slapp
banner
banner
banner