BÍ/Bolungarvík - ÍBV klukkan 18:00
ÍBV heimsækir BÍ/Bolungarvík í kvöld í fyrsta leiknum í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins. Eiður Aron Sigurbjörnsson fyrirliði ÍBV býst við hörkuleik.
,,Mér líst mjög vel á þetta. Þetta verður erfiður leikur. Það er alltaf gaman að spila á móti 1. deildarliði sem er fyrfram spurningamerki," sagði Eiður við Fótbolta.net í dag en hann segir ekkert vanmat vera hjá Eyjamönnum.
,,Við spiluðum á móti Þrótti í síðasta leik og í stöðunni 2-1 þar hefðu þeir alveg getað skorað eitt eða tvö mörk."
Ellefu dagar eru frá síðasta leik ÍBV en liðið fékk kærkomna hvíld eftir sigurleikinn gegn Fylki. ,,Það var fínt að fá smá frí en við erum búnir að taka 3-4 flottar æfingar fyrir þetta og menn eru klárir í þetta."
Ferðalagið er langt en Eyjamenn fara ekki í Herjólf að þessu sinni heldur verður flogið beint á Ísafjörð.
,,Við fljúgum beint í leikinn klukkan þrjú. Það er fín tilbreyting að fá að fljúga í leik," sagði Eiður.


