Það er áhugaverð umferð í 1. deildinni framundan en hún fer af stað í kvöld með tveimur leikjum. Við fengum Einar Hjörleifsson, markvörð Víkings Ólafsvík, til að draga fram spákúluna og má sjá hans niðurstöðu hér að neðan.
Leiknir - Víkingur R. X (í kvöld 19:15)
Risa Reykjavíkurslagur í Breiðholtinu og ég spái 1-1 jafntefli í þessum slag. Þekki til beggja liða og ef allt er eðlilegt þá skorar Hjörturinn eitt kvikindi eftir magnaða innkomu, Helgi Óttarr fær gult fyrir það eitt að vera Helgi Óttarr og Óli Hrannar jafnar fyrir Leiknismenn. Jafntefli verður niðurstaðan sem bæði lið verða sátt með eftir leik.
Þróttur - Grindavík 2 (í kvöld 19:15)
Grindavík er bara með feiknagott lið og virðast hafa gott jafnvægi í sínum leik og því reikna ég með sigri þeirra. Þróttarar hinsvegar eru óútreiknanlegir og geta unnið nánast alla á góðum degi en þetta verður því miður held ég ekki þeirra dagur.
Haukar - KA 1 (föstudagur 19:15)
KA-menn hafa valdið mér vonbrigðum það sem af er því ég reiknaði með því að þeir myndu koma gríðasterkir til leiks. Leit það þannig út í fyrstu með sigri á Selfossi, síðan þá hefur gengið alls ekki verið nógu gott. Haukarnir hinsvegar eru á pari það sem af er og eru á heimavellli. Staðan líklega 0-0 í hálfleik en svo neglir Óli Jó naglann á höfuðið og Haukar setja eitt. Meistari Sandor mun eiga stórleik.
Tindastóll - Fjölnir 1 (föstudagur 19:15)
Hinn magnaði Donni veit hvað hann syngur og hendir í eitt meistaraplan og þeir vinna vinnusigur í baráttuleik 2-1. Fjölnismenn án Gumma Kalla (leikbann) og er það áfall fyrir þá! Reiknaði með Fjölni í betri gír en eitthvað virðist vera að plaga þá þessa dagana á meðan Stólarnir eru í fínum gír.
Völsungur - Selfoss X (laugardagur 14:00)
Jafntefli er niðurstaðan. Hef alltaf fílað Völsung i botn og er nú komið að því að þeir skelli ser í betra formið og Selfoss verður í basli. Eru reyndar án Dejan en á ég von á því að menn gleymi því og byrji seasonið fyrir alvöru í þessum leik. Selfoss eru sterkir, vel spilandi og ná sér í stig. Skella sér svo á pizzu á leiðinni heim.
BÍ/Bolungarvík - KF 1 (sunnudagur 14:00)
Skástrikið með gríðaskemmtilegt lið og eru á heimavelli. Vinna góðan sigur á massívu liði KF. Veit ekkert um KF en grunar að Lárus Orri sé með eitthvað grjóthart plan um að halda hreinu en allt kemur fyrir ekki.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |



