Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 13. júní 2013 17:13
Brynjar Ingi Erluson
Elísa Viðarsdóttir inn í landsliðið fyrir Gunnhildi Yrsu
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, hefur valið hópinn fyrir leik liðsins gegn Dönum sem fer fram ytra núna 20. júní, en hann þurfti að gera eina breytingu á honum.

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, leikmaður Arna-Björnar í Noregi, er meidd og getur því ekki tekið þátt í leiknum gegn Dönum, en hún var á tréverkinu í 4-2 sigri á Sandviken á dögunum.

Sigurður Ragnar hefur því kallað inn leikmann í hennar stað, en Elísa Viðarsdóttir kemur inn í stað Gunnhildar.

Elísa á átta A-landsleiki að baki, en sá seinasti var gegn Svíuum í vináttuleik í apríl í 2-0 tapi.
Slapp
banner