Bayer Leverkusen hefur fundið arftaka framherjans Andre Schurrle, en félagið staðfesti að Heung-Min Son er genginn í raðir félagsins frá HSV.
Þetta var tilkynnt á sama tíma og staðfest var að Leverkusen hefði náð samkomulagi við Chelsea um kaup enska liðsins á Schurrle nú í hádeginu.
Heung-Min Son er tvítugur framherji sem hefur leikið með HSV undanfarin þrjú ár og þykir hann bráðefnilegur. Skoraði hann 20 mörk í 73 deildarleikjum með HSV.
Hefur Kórebúinn undanfarna mánuði verið orðaður við meðal annars Tottenham, en hann hefur nú skrifað undir 5 ára samning há Leverkusen.



