Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
   fim 13. júní 2013 22:14
Hafliði Breiðfjörð
Ingvar Kale: Flott að jafna eftir mótlæti frá dómara og Leikni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Leiknir voru sterkir og eitt stig í dag er allt í lagi, við ætluðum okkur þrjú en eitt stig á útivelli á móti sterku liði Leiknis er bara ásættanlegt," sagði Ingvar Kale markvörður Víkings eftir 2-2 jafntefli við Leikni í Breiðholti í kvöld.

,,Það var barátta í leiknum. Þeir komust yfir og svo var á brattann að sækja í fyrri hálfleik. Svo eigum við seinni hálfleik þar til við lendum manni færri og fáum á okkur víti sem ég nenni ekki að tjá mig um. Það sjá allir á vellinum að þetta var tóm þvæla. Þetta var fínn leikur."

Hjalti Már Hauksson fékk að líta rauða spjaldið fyrir orðbragð við línuvörð.

,,Ég veit ekki hvað hann segir en ef hann hefur sagt eitthvað sem var ekki við hæfi þá er það bara rautt. Ég veit ekki hvað Hjalti sagði hann verður að segja mér það á eftir, en ef hann segir eitthvað miður þá er það bara rautt spjald."

Ingvar fékk svo í kjölfarið dæmt á sig víti fyrir að fara aftan í Leiknismann.

,,Þetta var mjög undarlegt, ég veit ekki alveg hvað hann var að flauta á, ég hoppa upp í langt innkast hjá þeim og boxa boltann í burtu og er í raun og veru ekki nálægt neinum þegar ég geri það. Ég veit ekki hvað honum gekk til en svona gerist bara."

Víkingur jafnaði svo metin með marki Viktors Jónssonar í 2-2.

,,Já það er karakter. Viktor kemur inná og stangar hann í netið og það er flott að jafna leikinn eftir mótlæti frá dómara leiksins og gott mótlæti frá Leikni líka, flott lið á ferðinni þar."

Ingvar virtist ekki halda haus eftir dómana, kallaði eftir víti þegar boltinn fór í teig Leiknis og hljóp upp að þjálfarateymi Leiknis og fagnaði jöfnunarmarkinu framan í þá.

,,Það eru tilfiningar í þessu og það var bara réttlæti að jafna leikinn. Það vita allir hvernig ég er, ég er tilfinningamaður í þessu, svona er þetta. Ég er ekki viss um að ég hefði getað fengið spjald fyrir að fagna. Ég stóð bara á miðjunni og lyfti upp höndum og var ánægður með þetta."
Slapp
banner
banner