Rúnar Már gæti farið til félagsins
Sænska vefsíðan Fotbolls Puls fjallar um Íslendingamálin hjá B-deildarliðinu Sundsvall en Ari Freyr Skúlason og Jón Guðni Fjóluson eru hjá félaginu.
Ari hefur viljað yfirgefa Sundsvall síðan liðið féll úr efstu deild og gæti hann farið í sumar eða eftir tímabilið. Lið í efstu deild hafa sýnt honum áhuga.
Ari hefur viljað yfirgefa Sundsvall síðan liðið féll úr efstu deild og gæti hann farið í sumar eða eftir tímabilið. Lið í efstu deild hafa sýnt honum áhuga.
Jón Guðni hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Sundsvall en meiðsli hafa sett strik í reikninginn.
Magnús Agnar Magnússon, umboðsmaður Jóns Guðna, segist ekki sáttur við stöðu leikmannsins hjá félaginu. Hann sé of góður fyrir þá meðhöndlun sem hann hafi fengið og þurfi meiri spiltíma,
Magnús Agnar er einnig umboðsmaður Rúnars Más Sigurjónssonar, leikmanns Vals. Rúnar æfði um tíma hjá Sundsvall í janúar en ákvað að semja við Zwolle í Hollandi.
Að sögn Magnúsar Agnars gæti Rúnar þó gengið í raðir Sundsvall, hann hafi sjálfur áhuga á því og þá telur hann að áhugi félagsins sé enn til staðar.



