Fiorentina hefur náð samkomulagi við Malaga um kaup á vængmanninum Joaquin.
Þessi 31 árs gamli Spánverji á enn eftir að skrifa undir hjá Fiorentina og hefur ekki verið gefið upp hver verðmiðinn á honum er.
Búist er við að Joaquin skrifi undir hjá Fiorentina, en félagið mun leika í Evrópudeildinni á næstu leiktíð. Það mun Malaga hinsvegar ekki gera vegna banns um þáttöku í Evrópukeppnum á næstu leiktíð.
Joaquin hefur verið í herbúðum Malaga frá árinu árinu 2011, en þar áður lék hann með Valencia og Real Betis.




