Joey Barton, leikmaður QPR, fer fram á að félagið greiði sér 3,5 milljónir punda til hann verði laus allra mála hjá félaginu.
Barton eyddi síðasta tímabili í láni hjá franska félaginu Marseille og hefur hann lýst yfir vilja til að vera áfram í Frakklandi.
Barton, sem þénar 70.000 pund á viku, á enn tvö ár eftir af samningi sínum en báðir aðilar vilja hinsvegar slíta samningnum. QPR fer hinsvegar fram á það að Barton samþykki að lækka laun sín um helming, á meðan Barton er til í að slíta samningnum ef QPR greiðir honum helming þeirra launa sem hann á inni.
QPR þarf að lækka launakostnað sinn eftir að hafa fallið úr úrvalsdeildinni fyrir skömmu, en ljóst er að Barton á eftir að græða mikið á þessum samning - hvort sem hann verður áfram samningsbundinn QPR eða ekki.



