Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 13. júní 2013 16:20
Elvar Geir Magnússon
Jores Okore og Leandro Bacuna til Aston Villa (Staðfest)
Jores Okore er genginn í raðir Aston Villa frá Nordsjælland í Danmörku. Þessi tvítugi varnarmaður gekkst undir læknisskoðun í dag og skrifaði svo undir fjögurra ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið.

Paul Lambert, stjóri Aston Villa, telur að danski landsliðsmaðurinn geti orðið mikill liðsstyrkur í ensku úrvalsdeildinni

„Við erum með ungt lið sem spilaði oft flottan fótbolta seinni hluta síðasta tímabils. Við viljum byggja ofan á það og menn eru hungraðir í að gera góða hluti á næsta tímabili," segir Lambert.

Okore segist vita fullt um Aston Villa. „Ég hef séð nokkra leiki með liðinu því enska úrvalsdeildin er mjög vinsæl í Danmörku, Þjálfarinn er góður og þetta er flott félag. Þetta er rétta skrefið fyrir mig, ég finn það strax." segir Okore.

„Eg ég ætti að lýsa sjálfum mér? Stór og sterkur varnarmaður með góðan hraða. Númer eitt er að vera öflugur varnarmaður fyrir félagið en ég tel að ég geti líka komið með eitthvað sóknarlega."

Okore lék með Nordsjælland þegar liðið vann danska meistaratitilinn í fyrsta sinn 2011-12. Hann lék fimm leiki með liðinu í Meistaradeildinni á liðnu tímabili. Í nóbember 2011 lék hann fyrsta landsleik sinn fyrir Danmörku og hefur leikið sjö síðan.

Þá hefur Villa tryggt sér þjónustu Leandro Bacuna frá hollenska félaginu Groningen en hann hefur leikið fyrir yngri landslið Hollands. Bacuna er 21 árs miðjumaður og vængmaður.
Slapp
banner
banner
banner