Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 13. júní 2013 12:15
Elvar Geir Magnússon
Jörundur Áki: Mikilvægt að aðlagast samfélaginu
BÍ/Bolungarvík - ÍBV klukkan 18:00
Jörundur Áki Sveinsson hefur verið að gera frábæra hluti fyrir vestan.
Jörundur Áki Sveinsson hefur verið að gera frábæra hluti fyrir vestan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nigel Quashie er lykilmaður hjá BÍ/Bolungarvík.
Nigel Quashie er lykilmaður hjá BÍ/Bolungarvík.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er ekki á hverjum degi sem fyrrum leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni mætast á Torfnesvelli á Ísafirði. Sú er þó raunin í kvöld þegar BÍ/Bolungarvík, með Nigel Quashie innanborðs, mætir Hermanni Hreiðarssyni og David James í liði ÍBV.

Um er að ræða fyrsta leik 16-liða úrslita Borgunarbikarsins en aðrir leikir á þessu stigi keppninnar verða um miðja næstu viku.

„Það er mikil eftirvænting á svæðinu finnst okkur. Menn eru fullir sjálfstrausts eftir góða byrjun í sumar," segir Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari BÍ/Bolungarvíkur, sem var í fjallgöngu þegar Fótbolti.net truflaði hann.

„Eyjamenn eru öflugir varnarlega, mjög þéttir og við þurfum að stöðva sóknarfæri þeirra. Liðið hefur farið vel af stað í Pepsi-deildinni og eru með marga gríðarlega sterka leikmenn. Við munum vera varkárir í byrjun og þreifa aðeins á þeim."

Höldum okkur á jörðinni
Djúpmenn hafa komið á óvart í 1. deildinni í sumar, eru á toppnum með Grindavík eftir fimm umferðir. Telur Jörundur að liðið geti hangið í toppbaráttunni út tímabilið?

„Þetta lítur óneitanlega vel út en við höldum okkur alveg á jörðinni og tökum einn leik fyrir í einu. Eins og mörg lið úti á landi erum við tiltölulega nýbyrjaðir að æfa á grasi og trúum því að við eigum bara eftir að verða betri."

„Veturinn var erfiður og leikmen að koma seint inn í þetta. En menn hafa náð að koma sér saman fyrr en búist var við. Þeir leikmenn sem við höfum fengið voru fljótir að aðlagast liðinu og einnig samfélaginu hérna sem er ekki síður mikilvægt. Við höldum bara ótrauðir áfram," segir Jörundur Áki Sveinsson sem reiknar með hörkuleik.

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 18:00 og að sjálfsögðu verður leikið til þrautar um sæti í 8-liða úrslitum.
Slapp
banner
banner