Lars Lagerback, landsliðsþjálfari karla, kíkti við á æfingu hjá Hetti á Egilsstöðum í gærkvöldi.
,,Lars er á ferð hringinn í kringum landið, ásamt eiginkonu sinni, Helene og ég frétti af því í gegnum aðstoðarmann hans, Heimi Hallgrímsson," sagði Eysteinn Húni Hauksson þjálfari Hattar við Fótbolta.net í dag.
,,Ég bauð honum að sjálfsögðu að kíkja á æfingu, á leið sinni yfir héraðið, og það gerði hann. Hann átti örstutt spjall við liðið í upphafi æfingar og var mjög hrifinn af Vilhjálmsvelli og umhverfi hans. Ég tók þau svo í stutta skoðunarferð um kvöldið og Lars hafði meðal annars á orði að svæðið minnti sig á æskuslóðir hans."
,,Einnig var hann hissa þegar ég sagði honum að Egilsstaðir væru heimabær Hjálmars Jónssonar, sem hann talaði mjög vel um. Það var gaman að fá þau á svæðið og ég er viss um mörgum Íslendingum þyki vænt um það að þau gefi sér tíma í að skoða landið."
Höttur er ennþá án sigurs í 2. deildinni en spurning er hvort heimsókn Lars hafi góð áhrif á liðið fyrir næsta leik gegn Hamri á laugardag.




