Heimild: BBC
Hér að neðan er helsta slúðrið úr enskum fjölmiðlum í dag.
Barcelona hefur áhuga á Fernando Torres framherja Chelsea. (London Evening Standard)
Forráðamenn Barcelona sjá þó Torres einungis fyrir sér sem varamann á Nou Camp. (Daily Mirror)
PSG vonast til að hafa betur gegn Real Madrid í baráttunni um Gareth Bale en félagið ætlar að bjóða 85 milljónir punda í hann. (Daily Mail)
Manchester United vonar að Bale fari til Real Madrid þannig að líkurnar aukist á að spænska félagið selji Cristiano Ronaldo. (The Sun)
Tottenham er að undirbúa fjögurra milljóna punda tilboð í Gareth Barry miðjumann Manchester City en hann á að fylla skarð Scott Parker sem gæti verið á leið til Sunderland. (Daily Express)
Manchester United gæti þurft að greiða Bayern til að hætta við samkomulag sem félagið hefur náð við Robert Lewandowski framherja Borussia Dortmund. (Daily Star)
Nani mun ákveða framtíð sína í vikunni en hann er líklega á förum frá Manchester United. (Daily Star)
David Moyes, stjóri Manchester United, er nálægt því að ganga frá kaupum á Ezequiel Garay varnarmanni Benfica. (Daily Mirror)
Manchester City vonast til að koma Manuel Pellegrini muni hjálpa félaginu að fá Isco frá Malaga. (The Sun)
Al-Gharafa í Katar vill kaupa Djibril Cisse frá QPR en hann var á láni hjá félaginu síðari hluta tímabilsins. (Guardian)
Real Madrid ætlar að berjast við Chelsea og Manchester City um Edinson Cavani framherja Napoli. (Guardian)
Liverpool vonast til að krækja í Simon Mignolet markvörð Sunderland á átta milljónir punda í næstu viku. Liverpool hefur boðið sjö milljónir punda í kappann en Sunderland vill fá tiu milljónir. (Daily Mail)
West Ham vonast til að fá Demba Ba framherja Chelsea og Wilfried Zaha kantmann Manchester United á láni á næsta tímabili. (The Times)
PSG er tilbúið að greiða Tottenham tíu milljónir punda fyrir Andre Villas-Boas. (Daily Telegraph)
Steve McClaren og Owen Coyle eru líklegastir til að taka við Wigan. (Daily Mail)



