Jesus Navas, sem í vikunni gekk í raðir Manchester City frá Sevilla, segir það markmið sitt að vinna Meistaradeild Evrópu með félaginu.
Navas hefur unnið allt sem hægt er að vinna með spænska landsliðinu á undanförnum áru, en hann hefur þó lítið unnið með félagsliðum sínum.
Hann telur hinsvegar að það muni breytast þar sem leikmannahópur City er gríðarlega sterkur og að honum hlakki til að spila í Meistaradeildinni.
,,Ég hef unnið nokkra stóra titla, en Meistaradeildin er eitthvað sem maður hugsar alltaf um. Ég vill einnig njóta mín í úrvalsdeildinni og eiga gott ár," sagði Navas.
,,Sannleikurinn er sá að það er eins og draumur að rætast fyrir mig að fá að spila fyrir félag eins og Manchester City og berjast um titla og allt sem því fylgir."
,,Einstaklingslega séð, þá á City mjög góða leikmenn. Tilhugsunin um að spila hér með svo góðum leikmönnum og berjast um titla - ég trúi að liðið muni gera það - er ótrúleg."

