Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 13. júní 2013 13:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Reuters 
Sænskt félag biður lögreglu að rannsaka eigin leikmenn
Syrianska Kerburan í sænsku fjórðu deildinni hefur beðið lögreglu að rannsaka hvort að leikmenn liðsins hafi hagrætt úrslitum í leik á dögunum.

Veðbankar hættu að taka við veðmálum á heimaleik Syrianska gegn Kvarnshedens IK eftir að óvenju mörg há veðmál voru gerð á útisigur í leiknum.

Syrianska tapaði síðan heimaleiknum 5-1 og í kjölfarið ákvað félagið að láta rannsaka málið.

Félagið vonast með þessu til að ná að hreinsa nafn leikmanna og annarra starfsmanna félagsins.

,,Allir, leikmenn, þjálfarar, stjóranrmenn og starfsmenn munu nú taka þátt í rannsókn lögreglu," sagði í yfirlýsingu frá félaginu.
Slapp
banner
banner
banner