Heimild: Heimasíða Chelsea
Fátt virðist geta komið í veg fyrir að þýski landsliðsmaðurinn Andre Schurrle gangi í raðir Evrópudeildarmeistara Chelsea á næstu dögum frá Bayer Leverkusen.
Chelsea staðfesti rétt í þessu að Leverkusen hafi samþykkt tilboð félagsins í Schurrle. Kaupverðið er ekki gefið upp.
Chelsea staðfesti rétt í þessu að Leverkusen hafi samþykkt tilboð félagsins í Schurrle. Kaupverðið er ekki gefið upp.
Schurrle á sjálfur eftir að gangast undir læknisskoðun og gera samning við Chelsea. Reiknað er með að það muni ganga í gegn án mikilla vandkvæða.
Þessi 22 ára gamli framherji hefur verið orðaður við Chelsea undanfarið ár og hafa viðræður verið í gangi á milli félagana í langan tíma. Hann hefur leikið 24 leiki með þýska landsliðinu þrátt fyrir ungan aldur og skorað í þeim sjö mörk.
Verða þetta fyrstu kaup Portúgalans Jose Mourinho fyrir skömmu hóf sína aðra dvöl sem stjóri Chelsea.


