Safa Senturk, framherij BSV Hurturkel í þýsku 6. deildinni, hefur komist í fréttirnar eftir að hafa skorað 16 mörk í einum og sama leiknum.
Þessi 22 ára gamli leikmaður skoraði öll mörk BSV Hurturkel í 16-1 sigri á Club Italia um síðustu helgi.
Senturk starfar sem smiður í dag en hann vonast til að verða atvinnumaður í fótbolta eftir afrek helgarinnar.
,,Við vissum fyrir leik að það væri auðvelt að skora mörk gegn Club Italia. Þjálfarinn fékk þess vegna þá hugmynd að láta einn leikmann skora mikið til að verða markahæstur í deildinni," sagði Senturk.
,,Enginn bjóst við að þetta myndi virka, ég gerði það allavega ekki. Ég bjóst við að ég myndi skora fimm eða kannski sex mörk."
,,Ég giftist draumakonunni fyrir tveimur vikum og það væri frábært ef ég gæti fengið aðeins meiri pening í fótboltanum. Þjálfarinn minn er í sambandi við nokkur félög í Tyrklandi og kannski gerist eitthvað þar."



