Norsku meistararnir í Molde eru að ganga frá kaupum á Alexander Söderlund framherja Haugesund ef marka má frétt Dagbladet í dag.
Söderlund lék með FH sumarið 2010 en hann hefur skorað 30 mörk í 76 leikjum með Haugesund og í kjölfarið náð að vinna sér sæti í norska landsliðinu.
Ole Gunnar Solskjær, fyrrum framherji Manchester United, þjálfar Molde og hann vill fá Söderlund til að hjálpa liðinu að komast á flug á nýjan leik.
Eftir að hafa orðið meistari tvö ár í röð hefur gengið Molde verið skelfilegt í sumar en liðið situr í næstneðsta sæti norsku úrvalsdeildarinnar með tíu stig eftir tólf leiki.


