Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 13. júní 2013 17:00
Magnús Már Einarsson
Spilar Kevin Phillips fertugur í ensku úrvalsdeildinni?
Crystal Palace vonast til að framherjinn reyndi Kevin Phillips leiki áfram með liðinu í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

Phillips verður fertugur í næsta mánuði en hann skoraði markið sem kom Crystal Palace í úrvalsdeildinni í úrslitum umspilsins gegn Watford.

,,Við teljum að hann geti staðið sig í ensku úrvalsdeildinni ef við getum náð samkomulagi við hann og hann er til í að vera á suður Englandi í eitt ár í viðbót," sagði Steve Parish formaður Crystal Palace.

,,Kevin er ofur atvinnumaður og við vitum að hann mun ekki ákveða að vera áfram ef hann ætlar ekki að gefa allt sitt."
Slapp
banner
banner
banner