Einn eftirsóttasti bitinn á markaðnum er úrúgvæski markahrókurinn Edinson Cavani hjá Napoli. Ensku félögin Chelsea og Manchester City vilja fá hann til sín en Real Madrid á Spáni hefur þegar rætt við talsmenn leikmannsins.
Florentino Perez er ákveðinn í að ná endurkjöri sem forseti Real Madrid og eitt af þeim spilum sem hann ætlar að nota í því er að krækja í Cavani.
Cavani er nú að undirbúa sig fyrir Álfukeppnina í Brasilíu en hann skoraði eina markið í sigri Úrúgvæ gegn Venesúela í undankeppni HM á þriðjudaginn.
Cavani var markakóngur á liðnu tímabili í ítölsku A-deildinni.


